Reykhofið - 16m² viðarsána er hönnunar- og rannsóknarrými þar sem til skoðunar er hvort nýta megi leirflísar úr íslenskum jarðefnum sem byggingarefni hér á landi. Leirkerasmiðurinn Antonía Bergþórsdóttir vinnur að gerð eigin uppskrifta við framleiðslu á hásinduðum flísum.  Hún byggir á reynslu þar sem hún hefur unnið með og rannsakað íslenskan leir sl 8 ár.
Hún ásamt öðrum sem koma að vrekefninu hefur lokið við að hanna og smíða viðarsánuna og er hún tilbúin til þess að klára hana innandyra.

Rannsóknarspurning verkefnisins er hvernig megi þróa íslenskar uppskriftir og framleiða hásindraðar leirflísar úr íslenskum jarðefnum sem standast hita, raka, frost og veðurálag. Sánan á Berunesi verður hönnuð og byggð sem rannsóknarrými  fyrir verkefnið. Innandyra verða flísar og önnur efni fyrir álagi vegna umgangs og mikilla hita- og rakasveiflna en ytri byggingarhlutar fyrir raka, frosti og veðrun. Byggingin verður þannig frumgerð og langtímarannsóknarstofa fyrir þessi íslensku byggingarefni.

Stefnt er að opna Reykhofið almenningi í lok sumars 2027.

Previous
Previous

Teachings

Next
Next

Icelandic clay